Sale!
, , ,

20.000kr gjafabréf á KEF Restaurant og Diamond Lounge & Bar

Original price was: 20.000 kr..Current price is: 17.000 kr..

Gjafabréf sem gildir sem 20.000kr inneign á KEF Restaurant og Diamond Lounge & Bar en þú greiðir aðeins 16.000kr.

Gjafabréfin koma í fallegum og veglegum gjafaumslögum og gilda í eitt ár frá kaupum.

  Spurningar

KEF Restaurant

KEF Restaurant er staðsettur á Hótel Keflavík og er fyrsta flokks a la carte veitingastaður sem býður upp á ævintýralega rétti, eldaða úr fersku úrvalshráefni úr héraði svo þú getur alltaf verið viss um gæðin. KEF Restaurant er opinn alla daga í hádeginu og á kvöldin og svo bjóðum við upp á frábæran bröns matseðil allar helgar. Starfsfólkið okkar dekstrar við þig svo þú hafir það notalegt hjá okkur og upplifað einstaka stund í glæsilegu rými. 

Diamond Lounge & Bar

Diamond Bar & Lounge er glænýr bar staðsettur í móttöku Hótel Keflavík. Skreyttur með fallegri lýsingu, VERSACE flísum og góðri aðstöðu til að sitja og njóta í góðum félagsskap. Af barnum afgreiðum við sérvalið vín, úrval kokteila og íslenskan bjór á krana og bjóðum einnig upp á barmatseðil með ýmsum góðum smáréttum. Við barinn er sjálfspilandi flygill sem spilar ljúfa píanótónlist og hinn eini sanni Moet sjálfsali sem þú verður að prufa. 

Sendingarskilmálar

SENDINGARSKILMÁLAR

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir greiðslu pöntunar.

Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða endurgreiðslu sé varan ekki væntanleg aftur. 

Hægt er að sækja til okkar gjafabréfin að Vatnsnesvegi 12-14 230 Keflavík eða fá sent með pósti. Póstsendingar geta tekið þrjá til fimm virka daga.

Um allar sendingar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um dreifingu og afhendingu. Skilmála Póstsins má nálgast hér: https://www.postur.is/um-postinn/upplysingar/vidskiptaskilmalar/

Hótel Keflavík tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð.

Skilmálar gjafabréfa

Gjafabréfið gildir í ár frá kaupum og er það dagsett. Hægt er að kaupa gjafabréf sem ýmist gilda allt árið eða yfir einungis yfir vetrartímann. Dagsetning og gildistími eru tiltekin á gjafabréfi.

Handhafa er óheimilt að nota gjafabréfið eftir að gildistími þess rennur út.

Gjafabréf fást ekki endurgreidd og þau er ekki hægt að framlengja.

Hvers konar endursala á gjafabréfum er stranglega bönnuð nema með samþykki útgefanda.

Lög og varnarþing

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara skilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Endurgreiðsluskilmálar

Gjafabréf fást ekki endurgreidd og þau er ekki hægt að framlengja.

Skila- og skiptiskilmálar

Gjafabréf fæst ekki skilað né skipt.

Almennar fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir ennþá...

Scroll to Top