SENDINGARSKILMÁLAR
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir greiðslu pöntunar.
Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða endurgreiðslu sé varan ekki væntanleg aftur.
Hægt er að sækja til okkar gjafabréfin að Vatnsnesvegi 12-14 230 Keflavík eða fá sent með pósti. Póstsendingar geta tekið þrjá til fimm virka daga.
Um allar sendingar gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um dreifingu og afhendingu. Skilmála Póstsins má nálgast hér: https://www.postur.is/um-postinn/upplysingar/vidskiptaskilmalar/
Hótel Keflavík tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð.
Skilmálar gjafabréfa
Gjafabréfið gildir í ár frá kaupum og er það dagsett. Hægt er að kaupa gjafabréf sem ýmist gilda allt árið eða yfir einungis yfir vetrartímann. Dagsetning og gildistími eru tiltekin á gjafabréfi.
Handhafa er óheimilt að nota gjafabréfið eftir að gildistími þess rennur út.
Gjafabréf fást ekki endurgreidd og þau er ekki hægt að framlengja.
Hvers konar endursala á gjafabréfum er stranglega bönnuð nema með samþykki útgefanda.
Lög og varnarþing
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara skilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.