,

Artic Sea

6.354 kr.

 Forever Arctic Sea inniheldur blöndu af DHA-ríkri smokkfiskolíu, ofurhreinni Omega-3 fiskiolíu og náttúrulegu E- vítamíni.

120 belgir.

Ekki til á lager

  Spurningar

Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi Omega-3 og Omega-6 fitusýra fyrir mannslíkamann, þær teljast til góðrar fitu en jafnvægi þarf að ríkja á milli þessarra fitusýra. Því miður inniheldur vestrænt matarræði mun meira af Omega-6 fitusýrum sem að fást úr jurtaolíum og finnast í ýmsum tilbúnum mat. Þar að auki inniheldur matarræði margra of lítið af fiski og afurðum sem að færa okkur Omega-3 fitusýrur. Þetta leiðir oft til gríðarlegs ójafnvægis á milli þessarra fitusýra, allt að 30:1 ! Til að breyta því þurfum við að minnka inntöku af Omega-6 og auka inntöku af Omega-3 .

Omega-3 fitusýrur stuðla að heilbrigðu hjarta- og æðakerfi, styrkir heilastarfsemi og minni, dregur úr kólestermagni í blóði og styrkir náttúruleg viðbrögð líkamanns við bólgumyndun. Þær stuðla einnig að heilbrigði sjónar, lungna, liða og húðar.

Arctic-Sea töflurnar innihalda hágæða uppsprettu af Omega-3 fitusýrum sem skiptast í EPA (eikósapentanósýru) og DHA (dokósahexanó-sýru). Fullkomið jafnvægi er í hlutföllunum á milli DHA og EPA fitusýranna sem er ákjósanlegt til að búa yfir góðri heilsu og vellíðan.

Belgirnir innihalda Omega-3 fitusýrur sem fengnar eru úr DHA ríkri smokkfisksolíu og hreinni Omega-3 fiskiolíu úr laxi, anjósum og þorski, olíuríka ólívuolíu og E- vítamín sem að eykur nýtingu DHA og virkar sem náttúrulegt rotvarnarefni.

Hver belgur inniheldur Omega-3 fitusýrurnar, EPA 200 mg og DHA 200 mg, Oleic acid 100 mg. Ráðlagður skammtur er 1-2 töflur á dag. (120 gelbelgir).

Sendingarskilmálar

Afhending vöru

Við sendum frítt hvert á land sem er. Þegar að greiðsla hefur borist fyrir pöntuninni mun hún verða send næsta virka dag á eftir. Við sendum með Póstinum á það pósthús sem er næst kaupanda.

Þú getur greitt fyrir vörurnar í vefversluninni með millifærslu eða kreditkorti.

Reikningsnúmerið er : 0146-26-004908, kennitala: 490882-0579.
Vörunar verða sendar um leið og millifærsla hefur borist.

Ef kaupandi greiðir með kreditkorti er greiðslan framkvæmd í gegn um örugga greiðslugátt Valitor. Upplýsingar um greiðslukort kaupanda eru aldrei geymdar hjá aloevera.is.

Endurgreiðsluskilmálar

Við erum svo fullviss um að þér muni líka við vörurnar okkar, að við bjóðum skilyrðislausan skilarétt. Ef þú ert ekki ánægð/ur með einhverja vöru, skilaðu þá bara því sem að eftir er af vörunni til okkar ásamt kvittun, innan 60 daga frá því að þú keyptir hana og við munum endurgreiða þér að fullu.

Skila- og skiptiskilmálar

Vörunni er hægt að skipta innan 60 daga og fá skipt í aðra vöru eða endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óopnuð, í upprunalegum umbúðum og kvittun fyrir vörukaupum fylgi.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur og kemur til frádráttar á þeim vörum sem skilað er.

Vörum er hægt að skila með pósti til: 

Tískuverslunin Ríta ehf
Suðurvör 10
240, Grindavík

Gott er að láta vita af vöruskilum með því að senda póst á matthias@isholf.is, en það getur flýtt fyrir skilaferlinu.

Lög og varnarþing

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara skilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Almennar fyrirspurnir

Engar fyrirspurnir ennþá...

Scroll to Top