KEF Restaurant
KEF Restaurant er staðsettur á Hótel Keflavík og er fyrsta flokks a la carte veitingastaður sem býður upp á ævintýralega rétti, eldaða úr fersku úrvalshráefni úr héraði svo þú getur alltaf verið viss um gæðin. KEF Restaurant er opinn alla daga í hádeginu og á kvöldin og svo bjóðum við upp á frábæran bröns matseðil allar helgar. Starfsfólkið okkar dekstrar við þig svo þú hafir það notalegt hjá okkur og upplifað einstaka stund í glæsilegu rými.
Diamond Lounge & Bar
Diamond Bar & Lounge er glænýr bar staðsettur í móttöku Hótel Keflavík. Skreyttur með fallegri lýsingu, VERSACE flísum og góðri aðstöðu til að sitja og njóta í góðum félagsskap. Af barnum afgreiðum við sérvalið vín, úrval kokteila og íslenskan bjór á krana og bjóðum einnig upp á barmatseðil með ýmsum góðum smáréttum. Við barinn er sjálfspilandi flygill sem spilar ljúfa píanótónlist og hinn eini sanni Moet sjálfsali sem þú verður að prufa.