Hótel Keflavík – Rétt hjá útlöndum
Við erum staðsett í hjarta miðbæjar Keflavíkur við hinn stórbrotna Reykjanesskaga sem skartar sínum fögru náttúruperlum sem verðugt er að heimsækja. Hótel Keflavík er rétt hjá útlöndum eða aðeins 5 mínútna fjarlægð frá KEF flugvelli.
Lúxus svítur
Þú finnur úrval af þægindum á Hotel Keflavik í lúxussvítunni þinni. Til að tryggja að þú fáir besta svefninn státar lúxus svítan af king-size Duxiana rúmi. Baðherbergið er með lúxusinnréttingum þar á meðal regnsturtuhaus, möguleika á lúxus nuddbaðkari og blöndunartæki hannað af Philippe Starck. Hver svíta er sérhönnuð og skreytt með aðeins lúxus húsgögnum, efnum og búnaði. Hver svíta er sérhönnuð og skreytt með aðeins lúxus húsgögnum, efnum og búnaði. Í svítunni finnur þú hágæða 42 “Bang Olufsen flatskjásjónvarp með fjölbreyttu ókeypis gervihnattaneti, Apple TV afþreyingarkerfi og iPad með SONOS tónlistarkerfi. Við bjóðum upp á ókeypis Wi-Fi Internet fyrir gesti okkar. Allir gestir sem gista í lúxussvítunum okar hafa aðgang að heitum potti úti á svölunum okkar.
Morgunverður innifalinn
Okkar margrómaði morgunverður er opinn daglega og er innifalinn í gistingunni. Við höfum einnig möguleika á fyrirfram pöntuðum a la cart morgunverði á afskekktu svæði á KEF Restaurant. Við bjóðum upp á sérstakan à la cart morgunmatseðil með miklu úrvali sem þú getur valið um. Athuga að a la cart morgunverður er ekki innifalinn í verði. Verð er mismunandi eftir því hvað er pantað af matseðlinum. Vinsamlegast hafið samband við móttöku til að fá frekari upplýsingar.
KEF Restaurant
Gestir okkar fá 10% afslátt af matseðli á KEF Restaurant.* KEF Restaurant er fyrsta flokks a la carte veitingastaður sem býður upp á ævintýralega rétti, eldaða úr fersku úrvalshráefni úr héraði svo þú getur alltaf verið viss um gæðin. KEF Restaurant er opinn alla daga í hádeginu og á kvöldin og svo bjóðum við upp á frábæran bröns matseðil allar helgar. Starfsfólkið okkar dekstrar við þig svo þú hafir það notalegt hjá okkur og upplifað einstaka stund í glæsilegu rými. *Athuga að það gildir ekki með öðrum tilboðum
Diamond Lounge & Bar
Diamond Bar & Lounge er glænýr bar staðsettur í móttöku hótelsins. Skreyttur með fallegri lýsingu, VERSACE flísum og góðri aðstöðu til að sitja og njóta í góðum félagsskap. Af barnum afgreiðum við sérvalið vín, úrval kokteila og íslenskan bjór á krana og bjóðum einnig upp á barmatseðil með ýmsum góðum smáréttum. Við barinn er sjálfspilandi flygill sem spilar ljúfa píanótónlist og hinn eini sanni Moet sjálfsali sem þú verður að prufa.
Líkamsræktarstöðin Lífstíll
Gestir okkar fá frían aðgang að líkamsræktarstöð okkar. Líkamsræktarstöðin Lífstíll er 640 fermetrar og með fullbúnri aðstöðu með öllum þeim helstu líkamsræktartækjum s.s. hlaupabrettum með sjónvarpsskjám, skíðatækjum og þrekhjólum, bekkpressum og lausum lóðum, teygjuu og ýmis önnur uppitunar- og lyftingartæki. Við höfum einnig íþróttasal fyrir gólfæfingar, teygjur og styrktaræfingar. Lífstíll býður einnig upp á spinning og aerobics tíma fyrir alla hótelgesti sem og aðstöðu til hvíldar í saunu eða ljósabekkjum.